Fotbolti.net
12.11.26 - 19:44
Brynjar Ingi Erluson

„Yfirlýsing Man Utd er eins og eitthvað sem ChatGPT hefði skrifað“

Michael Carrick var rekinn í dag

Michael Carrick var rekinn í dag

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick var rekinn frá Manchester United eftir tæpt ár í starfi, en félagið greindi frá tíðindunum í dag.
Carrick rekinn frá United (Staðfest)
TENGT EFNI

Carrick rekinn frá United (Staðfest)

Carrick tók við United í byrjun árs og stýrði liðinu í Meistaradeildina áður en hann var ráðinn til frambúðar.

Gengið á þessu tímabili hefur hins vegar verið hörmulegt og hefur United ekki unnið deildarleik síðan í lok ágúst.

Carrick var því látinn taka pokann sinn í dag og bendir allt til þess að Mauricio Pochettino taki við keflinu.

Rio Ferdinand, fyrrum samherji Carrick hjá United, er hins vegar allt annað en sáttur við hvernig félagið stóð að brottrekstrinum og segir Carrick hafa verið sýnda mikla vanvirðingu.

„Yfirlýsing Man Utd er eins og eitthvað af ChatGPT. Ég vil heyra í einhverjum og sjá eitthvað andlit,“ sagði Ferdinand á X.

Hann lét þar ekki staðar numið og gagnrýndi einnig hvernig upplýsingum um brottreksturinn hafði verið lekið úr félaginu áður en ákvörðunin var tilkynnt.

„Félagið verður að gera allt sem það getur til að standa að svona ákvörðun af eins mikilli virðingu og mögulegt er. Það hefði verið hægt að gera þetta miklu betur. Mér fannst lekarnir úr félaginu hræðilegir og þeir komu illa út fyrir alla.“

„Þetta er enn meiri vanvirðing við manninn sem var við stjórnvölinn á þessum tíma. Það er skelfilegt að svona hlutir skuli fara fram fyrir allra augum. Það minnsta sem hann á skilið er smá virðing,“
sagði Ferdinand í hlaðvarpi sínu.


Rio Ferdinand klórar sér í hausnum yfir Man Utd

Rio Ferdinand klórar sér í hausnum yfir Man Utd

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.