12.12.12 - 12:56
Magnús Már Einarsson
Gummi Kristjáns til Start (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Start hefur náð samkomulagi við Breiðablik um kaup á Guðmundi Kristjánssyni og leikmaðurinn hefur sjálfur skrifað undir tveggja ára samning við norska félagið.
Guðmundur var í láni hjá Start á þessu ári þegar liðið vann norsku fyrstu deldina og tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni.
Matthías Vilhjálmsson var einnig í láni hjá Start frá FH á nýliðnu tímabili en þau félög náðu samkomulag á dögunum um félagaskipti hans.

Guðmundur skoraði sjö mörk í 27 leikjum með Start í ár en hann leysti nánast allar stöður hjá liðinu. Þessi 23 ára gamli leikmaður er spenntur fyrir næsta tímabili.
,,Ég er mjög ánægður með að vera áfram á næsta tímabili. Ég er að æfa vel heima á Íslandi og ég hlakka til að spila í úrvalsdeildinni,\" sagði Guðmundur við heimasíðu Start í dag.
,,Þrátt fyrir að þetta hafi tekið smá tíma þá var ég ekki stressaður. Það er samt frábært að þetta er klárt núna.\"
,,Ég tel að ég geti spilað betur en á þessu ári. Við þurfum allir að bæta okkur þar sem við mætum erfiðari andstæðingum og ég held að við munum gera það. Ég ætla allavega að vera sem best undirbúinn.\"

Heimild: Heimasíða Start