12.12.16 - 13:42
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Böðvar aftur í ÍA (Staðfest)

Guðmundur Böðvar Guðjónsson.

Mynd: Guðmundur Bjarki Halldórsson

Guðmundur Böðvar Guðjónsson.

Mynd: Guðmundur Bjarki Halldórsson
Guðmundur Böðvar Guðjónsson hefur samið við uppeldisfélag sitt ÍA á nýjan leik.
Guðmundur gekk til liðs við Fjölni árið 2013 eftir að hafa áður leikið allan sinn feril á Akranesi.
Þessi 27 ára gamli miðjumaður lék síðari hlutann á síðasta tímabili með ÍA á láni og nú er ljóst að hann verður áfram hjá liðinu næsta sumar.

„Ég er með mikinn metnað fyrir klúbbnum og hlakka til þess sem framundan er. Við eigum öll fullt inni,\" segir Guðmundur í fréttatilkynningu sem ÍA sendi frá sér.
Eins og fram kom á Fótbolta.net á dögunum þá hefur skoski miðjumaðurinn Iain Williamson einnig samið við ÍA eftir að hafa verið á láni hjá félaginu frá Víkingi R. síðastliðið sumar.
„Iain kom virkilega sterkur inn hjá okkur á erfiðum tíma í maí eftir slakt gengi. Hann kom og bætti leik liðsins ásamt því að vera frábær liðsmaður,\" sagði Jón Þór Hauksson, aðstoðarþjálfari ÍA.
„Sama má segja um Gumma sem kom til liðs við okkur í sumarglugganum á láni frá Fjölni. Við höfum fylgst vel með honum undanfarin ár og það er ekkert leyndarmál að við höfum haft áhuga á að endurheimta hann aftur í ÍA. Gummi hefur þróað sinn leik vel hjá Fjölni. Við erum gríðarlega ánægðir með að hann hafi nú samið við okkur.”
Penninn er á lofti á Akranesi þessa dagana en fyrr í dag var greint frá því að framherjinn ungi Stefán Ómar Magnússon hefði komið til félagsins frá Hugin.

Iain Williamson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð