Fotbolti.net
12.12.16 - 19:05
Elvar Geir Magnússon

Ronaldo vann Ballon d\'Or (Staðfest) - Sjáðu topplistann

Ronaldo er sá fyrsti í sögunni sem vinnur Meistaradeildina, EM og Ballon d\'Or á sama ári.

Ronaldo er sá fyrsti í sögunni sem vinnur Meistaradeildina, EM og Ballon d\'Or á sama ári.

Canon

Mynd: Getty Images

Cristiano Ronaldo vann gullknöttinn, Ballon d\'Or, sem besti knattspyrnumaður ársins 2016 en franska tímaritið France Football tilkynnti það nú í kvöld.

Ronaldo og Lionel Messi eru þeir einu sem hafa unnið þessi verðlaun síðan Brasilíumaðurinn Kaka hlaut þau 2007.
Messi hefur unnið gullknöttinn fimm sinnum, þar á meðal í fyrra, en Ronaldo var að vinna sinn fjórða knött.

Ronaldo átti frábært ár í boltanum, raðaði inn mörkum fyrir Real Madrid sem er á toppi spænsku deildarinnar og vann Meistaradeild Evrópu. Þá varð hann Evrópumeistari með Portúgal í sumar.

Lokaniðurstaðan:
1: Cristiano Ronaldo (Real Madrid / Portúgal)
2. Lionel Messi (Barcelona / Argentína)
3. Antoine Griezmann (Atletico Madrid / Frakkland)
4. Luis Suarez (Barcelona / Úrúgvæ)
5. Neymar (Barcelona / Brasilía)
6. Gareth Bale (Real Madrid / Wales)
7. Riyad Mahrez (Leicester / Alsír)
8. Jamie Vardy (Leicester / England)
9. Gianluigi Buffon (Juventus / Ítalía) og Pepe (Real Madrid / Portúgal)
11. Pierre-Emerick Aubameyang (Borussia Dortmund / Gabon)
12. Rui Patricio (Sporting CP / Portúgal)
13. Zlatan Ibrahimovic (Manchester United / Svíþjóð)
14. Paul Pogba (Manchester United / Frakkland) og Arturo Vidal (Bayern München / Síle)
16. Robert Lewandowski (Bayern München / Pólland)
17. Toni Kroos (Real Madrid / Þýskaland), Luka Modric (Real Madrid / Króatía) og Dimitri Payet (West Ham / Frakkland).

Parabéns @Cristiano !#ballondor pic.twitter.com/jnAgI0NDU1

-- France Football (@francefootball) December 12, 2016


???
Congratulations to @Cristiano on winning his fourth Ballon d\'Or!#HalaMadrid #RealMadrid pic.twitter.com/zEZScjRYaZ

-- Real Madrid C.F. (@realmadriden) December 12, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.