12.12.16 - 12:06
Magnús Már Einarsson
Sonni Ragnar frá FH til Molde (Staðfest)

Sonni Ragnar Nattestad.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sonni Ragnar Nattestad.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Færeyski landsliðsmaðurinn Sonni Ragnar Nattestad hefur skrifað undir þriggja ára samning hjá norska félaginu Molde. Sonni Ragnar kom til FH síðastliðinn vetur en Íslandsmeistararnir hafa nú selt hann til Noregs.
Hinn 22 ára gamli Sonni náði ekki að vinna sér inn sæti í byrjunarliði FH. Í júlí fór hann til Fylkis á láni eftir að hafa einungis leikið einn leik í Pepsi-deildinni með Fimleikafélaginu.
Sonni lék vel í vörn Fylkis síðari hluta tímabils en hann spilaði átta leiki með liðinu.
Sonni er fastamaður í landsliði Færeyja en hann lék með FC Midtjylland, AC Horsens og Vejle BK í Danmörku áður en FH fékk hann í sínar raðir.
Molde endaði 5. sæti í norsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en Ole Gunnar Solskjær, fyrrum framherji Manchester United, er þjálfari liðsins.
Molde hefur horft í Pepsi-deildina eftir liðsstyrk að undanförnu því á dögunum keypti félagið framherjann unga Óttar Magnús Karlsson frá Víkingi Reykjavík.