12.12.16 - 12:43
Magnús Már Einarsson
Stefán Ómar í ÍA (Staðfest)

Stefán Ómar Magnússon.

Mynd: ÍA

Stefán Ómar Magnússon.

Mynd: ÍA
ÍA hefur fengið framherjann Stefán Ómar Magnússon í sínar raðir frá Hugin á Seyðisfirði. Stefán hefur skrifað undir þriggja ára samning hjá ÍA.
„Þetta er mjög kröftugur og vinnusamur sóknarmaður sem á eftir að smellpassa í umhverfið hjá okkur. Þrátt fyrir að vera kornungur hefur hann talsverða reynslu úr meistaraflokksbolta og okkur hlakkar til að vinna með honum og þróa enn frekar,\" sagði Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA.
Stefán Ómar vakti athygli í Inkasso-deildinni í sumar en hann skoraði fjögur mörk í 21 leik með Hugin. Huginn féll á endanum úr deildinni eftir ævintýralega lokaumferð.
Stefán er fæddur árið 2000 en hann er því ennþá á yngsta ári í 2. flokki.
Hann spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki þegar Huginn sigraði 2. deildina í fyrra. Stefán skoraði þá einnig sitt fyrsta mark í meistaraflokki, þá 15 ára gamall.
Á dögunum spilaði Stefán sína fyrstu leiki með U17 ára landsliði Íslands gegn Þýskalandi.

Stefán í leik með Hugin.

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla