Fotbolti.net
12.12.16 - 23:00
Jóhann Ingi Hafþórsson

Wolfsburg rekur yfirmann íþróttamála (Staðfest)

Wolfsburg getur lítið fagnað þessa dagana.

Wolfsburg getur lítið fagnað þessa dagana.

Canon

Mynd: Getty Images

Wolfsburg hefur leyst Klaus Allofs, yfirmann íþróttamála hjá félaginu frá störfum eftir skelfilega byrjun á leiktíðinni.
Allofs kom til félagsins í nóvember 2012 og varð liðið fljótlega bikarmeistari ásamt því að enda í 2. sæti deildarinnar árið 2014.

Wolfsburg eru hins vegar í 15. sæti deildarinnar eins og er og töpuðu þeir 5-0 fyrir Bayern um helgina og reyndist það síðasta kornið sem fyllti mælinn hjá stjórnarmönnum félagsins.

Þýska félagið rak þjálfarann sinn, Dieter Hecking í október en Valérien Ismaël tók við þeim. Ismael hefur hins vegar gengið illa að snúa við gengi liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.