Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 12. desember 2019 14:25
Elvar Geir Magnússon
Heimild: RÚV 
Aron Einar stefnir á að spila 2. janúar
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson er að jafna sig eftir aðgerð á ökkla og stefnir á að snúa aftur á keppnisvöllinn með liði sínu, Al-Arabi í Katar, þann 2. janúar.

„Ég er byrjaður að hlaupa úti á grasi og það byrjar mjög vel. Það er bara að koma sér í form núna," sagði Aron Einar í viðtali við RÚV

Aron missti af síðustu landsleikjum Íslands í undankeppni Evrópumótsins.

„Það var svekkjandi að meiðast á þessum tíma en samt sem áður tekur maður því eins og hverju öðru og maður þarf bara að reyna að koma sér í gang eins fljótt og hægt er. Ég sé fram á að vera í 100% formi í mars."

Ísland mætir Rúmeníu á Laugardalsvelli í lok mars í undanúrslitum umspilsins um sæti á EM 2020. Sigurliðið mætir Ungverjalandi eða Búlgaríu í úrslitaleiknum á útivelli.

„Við ætlum okkur á EM. Það skrítnasta er að sjá að Portúgal, Frakkland og Þýskaland séu í sama riðli. En þeir hafa ákveðið að gera þetta svona og við tökum því bara. Við hlökkum til," segir Aron en ljóst er að ef Ísland kemst á EM þá verður liðið í riðli með þessum stórþjóðum.
Athugasemdir
banner