Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 12. desember 2019 22:18
Ívan Guðjón Baldursson
Þór fær Bergvin og Elvar (Staðfest)
Bergvin í leik með Magna.
Bergvin í leik með Magna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór er búið að fá Bergvin Jóhannsson og Elvar Baldvinsson til liðs við sig frá nágrannaliðum sínum, Magna og Völsungi.

Bergvin er 24 ára og getur leikið sem bakvörður eða framherji. Hann er uppalinn hjá Þór og spilaði fimm keppnisleiki fyrir meistaraflokk áður en hann skipti yfir til Völsungs.

Hann lék fyrir Völsung sumarið 2016 og skipti svo yfir til Magna, þar sem hann hefur spilað 36 leiki og skorað 6 mörk.

Bergvin skrifar undir tveggja ára samning við Þór.

Elvar er 22 ára miðjumaður sem hefur gert 28 mörk í 125 leikjum fyrir Völsung.

Hann hefur verið lykilmaður á Húsavík undanfarin ár og mun nú spreyta sig í Inkasso-deildinni í fyrsta sinn. Elvar gerir eins árs samning við Þór.

Athugasemdir