13.01.17 - 22:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jón Björgvin í Þór (Staðfest)

Samningurinn handsalaður.

Mynd: Knattspyrnudeild Þórs

Samningurinn handsalaður.

Mynd: Knattspyrnudeild Þórs
Knattspyrnudeild Þórs gerði í kvöld samning við Jón Björgvin Kristjánsson. Einnig framlengdu þeir Kristinn Þór Björnsson og Jakob Snær Árnason samninga sína við Þór og gilda þeir til eins árs.
Jón Björgvin, sem er 25 ára gamall var síðast á mála hjá Kára á Akranesi, en hann lék 16 leiki með þeim í 3. deildinni síðasta sumar.

Hann hefur einnig leikið með ÍA og Gróttu og þá var hann á mála hjá KF 2012 og 2013, en þá stýrði Lárus Orri Sigurðsson, núverandi þjálfari Þórs, liði KF.
Jón Björgvin á að baki alls 69 meistaraflokks leiki og skorað í þeim 15 mörk. Hann hefur leikið með Þórsurum í Kjarnafæðismótinu og var í byrjunarliðinu gegn Fjarðabyggð í kvöld.
Kristinn Þór Björnsson, sem verður 28 ára á árinu, er uppalinn Dalvíkingur, en gekk til liðs við Þór 2012. Hann á að baki 175 leiki með meistaraflokki og í þeim leikjum hefur hann skorað 25 mörk. Kristinn Þór er sóknarmaður.
Jakob Snær Árnason, sem er 19 ára gamall varnarmaður, gekk til liðs við Þór 2015 og á að baki 9 leiki með meistaraflokki.