13.01.17 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Viktoría Valdís í Stjörnuna (Staðfest)

Viktoría Valdís Guðrúnardóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktoría Valdís Guðrúnardóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan hefur fengið liðsstyrk fyrir Pepsi-deild kvenna í sumar en Viktoría Valdís Guðrúnardóttir er komin til Íslandsmeistaranna frá FH.
Viktoría er 21 árs gömul en hún hefur leikið allan sinn feril með FH.
Viktoría getur spilað á miðjunni og í vörninni en hún lék sextán leiki með FH á síðasta tímabili og var með fyrirliðabandið í nokkrum leikjum.
Í vetur hafa Guðmunda Brynja Óladóttir, Írunn Þorbjörg Aradóttir og Thelma Hjaltalín Þrastardóttir einnig gengið til liðs við Stjörnuna.