Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 13. janúar 2019 18:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
De Gea setti persónulegt met - 11 skot varin
Mynd: Getty Images
David de Gea átti heldur betur geggjaðan leik þegar Manchester United vann 1-0 sigur gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Tottenham sótti látlaust í síðari hálfleik en það er svo sannarlega hægara sagt en gert að skora fram hjá De Gea þegar hann er í stuði. Hann þurfti heldur betur að taka á stóra sínum, en hélt markinu hreinu.

Samkvæmt tölfræðisíðunni Opta þá varði De Gea 11 skot í leiknum, en það er mesta sem hann hefur varið í úrvalsdeildarleik án þess að fá á sig mark.

Heldur betur alvöru leikur hjá Spánverjanum.


Athugasemdir
banner
banner
banner