Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 13. janúar 2019 11:30
Ívan Guðjón Baldursson
Vainqueur til Mónakó (Staðfest) - Þiggur ekki laun
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Wiliam Vainqueur er genginn til liðs við Mónakó í frönsku fallbaráttunni á lánssamningi frá tyrkneska félaginu Antalyaspor.

Vainqueur vildi ólmur ganga til liðs við Mónakó en félagið hætti við að fá hann til sín vegna peningamála.

Nú hefur félagið hins vegar skipt um skoðun eftir að Vainqueur sagðist ekki ætla að þiggja laun meðan hann væri að glíma við meiðsli, en hann er meiddur þessa stundina.

Vainqueur er 30 ára gamall og á leiki að baki fyrir Nantes, Standard Liege, Dynamo Moskvu, Roma og Marseille.
Athugasemdir
banner
banner
banner