Fotbolti.net
13.01.20 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Danny Ings bankar á landsliðsdyrnar

Danny Ings.

Danny Ings.

Canon

Mynd: Getty Images

Danny Ings óð í færum og hefði vel getað skorað þrennu þegar Southampton vann Leicester um helgina.

Þessi 27 ára leikmaður skoraði eitt mark en það var sigurmarkið í leiknum. Sóknarmaðurinn hefur verið að spila virkilega vel undir stjórn Ralph Hasenhuttl.
Ings á einn landsleik að baki, undir stjórn Roy Hodgson gegn Litháen 2015.

Talið er líklegt að Ings fái landsliðskallið aftur eftir góða frammistöðu, Brendan Rodgers stjóri Leicester er allavega á því.

„Það er enginn vafi á að hann gerir sterkt tilkall. Hann þarf bara að halda stöðugleika, þá er hann einn besti sóknarmaðurinn sem er í boði," segir Rodgers.

Ings er kominn með 14 mörk í ensku úrvalsdeildinni.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.