20.11.26 - 16:07
Elvar Geir Magnússon
Kean fór með sjúkrabíl og verður frá næstu mánuði

Moise Kean.

Mynd: EPA

Moise Kean.

Mynd: EPA
Ítalski landsliðsmaðurinn Moise Kean verður frá keppni í nokkra mánuði en þetta staðfesti Cesc Fabregas, stjóri Como.
Framherjinn kom til Como frá Fiorentina í sumar en hann hefur glímt við meiðsli í hægri fæti frá lokum síðasta tímabils. Hann hefur spilað fjóra deildarleiki fyrir Como á tímabilinu.
Framherjinn kom til Como frá Fiorentina í sumar en hann hefur glímt við meiðsli í hægri fæti frá lokum síðasta tímabils. Hann hefur spilað fjóra deildarleiki fyrir Como á tímabilinu.
„Hann fann fyrir einhverju og varð mjög hræddur, féll til jarðar og við hin vorum líka hrædd um hann. Sjúkrabíll kom til að sækja hann, við héldum að þetta væri mjög alvarlegt. Það er rétt að hann verður frá í nokkra mánuði, ekki vikur. Þetta er vandamál með beinið. Við þurfum bara að sýna honum stuðning," segir Fabregas.
Como er í fimmta sæti ítölsku A-deildarinnar.
Como er í fimmta sæti ítölsku A-deildarinnar.
