Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir ekki öruggt að Harry Kane spili meira með liðinu á tímabilinu.
Kane fór í aðgerð í síðustu viku vegna meiðsla aftan í læri og Tottenham greindi frá því að hann snúi ekki aftur til æfinga fyrr en í apríl.
Ef allt fer á versta veg þá kemur Kane mögulega ekki meira við sögu á tímabilinu.
Óvíst er með þátttöku hans með enska landsliðinu á EM 2020.

„Ég hef engar fréttir af Harry og ef þið spyrjið mig í hvert skipti sem þið komið hingað þá verður svarið það sama," sagði Mourinho á fréttamannafundi.
„Við búumst við því að hann verði frá keppni þar til um miðjan apríl, lok apríl, maí eða þangað til á næsta tímabili. Við vitum það ekki."
Athugasemdir