Fotbolti.net
13.01.20 - 21:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalska deildin

Ítalía: Parma lætur vita af sér í Evrópubaráttunni

Cornelius (hægri) skoraði annað mark Parma í kvöld.

Cornelius (hægri) skoraði annað mark Parma í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Parma 2 - 0 Lecce
1-0 Simone Iacoponi ('57 )
2-0 Andreas Cornelius ('72 )

Parma tók á móti Lecce í lokaleik 19. umferðar ítölsku Seríu A. Lecce er mikilli fallbaráttu á meðan Parma gat stimplað sig inn í Evrópu-baráttuna með sigri.
Riccardo Gagliolo, vinstri bakvörður Parma, fékk besta færi fyrri hálfleiks á 40. mínútu en skot hans var vel varið af Gabriel, markverði Lecce. Markalaust var í leikhléi en á 57. mínútu kom fyrsta mark leiksins.

Hernani tók þá hornspyrnu sem Simone Iacoponi skallaði í netið. Dekkningin var ekki frábær hjá Lecce því Iacoponi var aleinn í teig andstæðingana.

Á 72. mínútu bætti varamaðurinn Andreas Cornelius við öðru marki Parma. Cornelius kom inn á 70. mínútu og skoraði tveimur mínútum seinna. Cornelius var réttur maður á réttum stað í teignum þegar hann fylgdi á eftir skalla liðsfélaga síns sem fór af slánni út í teiginn.

Skömmu seinna fékk Gianluca Lapadula gott færi en skot hans eftir frákast fór í slána. Lapadula fékk annað færi á 86. mínútu en skaut þá framhjá, ekki alveg hans dagur. Liðin fengu svo sitt hvort færið í uppbótartíma en inn vildi boltinn ekki.

2-0 niðurstaðan og Parma einungis stigi á eftir Cagliari í baráttunni um 6. sætið. Þetta var fjórða tap Lecce í röð, liðið er í 17. sæti með stigi meira en Genoa og Brescia sem eru í fallsætum.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta9-111
14Lecce10-109
15Sassuolo9-88
16Monza10-77
17Fiorentina9-105
18Parma9-105
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.