Pepe Reina, markvörður AC Milan, er genginn í raðir Aston Villa á láni út þessa leiktíð.
Aston Villa er í mikilli fallbaráttu og hefur leitað að markverði í stað Tom Heaton sem meiddist á dögunum.
Aston Villa er í mikilli fallbaráttu og hefur leitað að markverði í stað Tom Heaton sem meiddist á dögunum.
Reina. sem er 37 ára gamall, hefur leikið með Barcelona, Liverpool, Napoli, Bayern Munchen og Milan á ferlinum. Þá lék hann 36 landsleiki á sínum tíma fyrir Spán.
Búist er við því að Asmir Begovic gangi í raðir AC Milan frá Bournemouth sem stuðningur við Gianluigi Donnarrumma.
We are delighted to confirm the arrival of vastly experienced goalkeeper @PReina25 on loan until the end of the season. 🙌#BienvenidoPepe #AVFC @eToro
— Aston Villa (@AVFCOfficial) January 13, 2020
Athugasemdir