AC Milan hefur fengið danska varnarmanninn Simon Kjær á láni frá Sevilla út tímabilið.
Kjær var á láni hjá Atalanta fyrri hluta tímabils en hann spilaði einungis sex leiki þar.
Kjær var á láni hjá Atalanta fyrri hluta tímabils en hann spilaði einungis sex leiki þar.
Kjær vildi því róa á önnur mið til að fá að spila meira.
Kjær þekkir ítalska boltann vel en hann hefur áður spilað með bæði Palermo og Roma.
AC Milan er í 10. sæti í Serie A, tíu stigum á eftir Atalanta sem er í 4. sætinu og síðasta Meistaradeildarsætinu.
Athugasemdir