Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 13. janúar 2021 09:26
Magnús Már Einarsson
Aubameyang: Ég get snúið þessu við
Mynd: Getty Images
Pierre-Emerick Aubameyang, framherji Arsenal, segist geta snúið blaðinu við og byrjað að skora aftur.

Aubameyang hefur einungis skorað þrjú mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili sem er lítið miðað við síðustu tímabil hjá honum.

„Frá byrjun tímabilsins hef ég verið í miklum vandræðum en það er hluti af fótboltanum," sagði Aubameyang.

„Við gerðum mikið í lok síðasta tímabils til að vinna enska bikarinn og komast í Evrópudeildina því það var mikilvægt fyrir félagið."

„Stundum eru upp og niðursveiflur og þú þarft að takast á við þær á eins góðan hátt og hægt er. Ég er búinn að reyna mitt besta þar til núna en þetta var ekki besta frammistaðan hjá mér. Ég er ennþá jákvæður og tel að ég geti snúið þessu við."

Athugasemdir
banner
banner