KA hefur staðfest þriggja ára samning við Danijel Dejan Djuric. KA var í baráttu við Breiðablik um undirskrift Danijels og í gær valdi hann KA.
Fjallað hefur verið um að KA greiði um 18 milljónir króna fyrir Danijel sem er 23 ára sóknarmaður, en það er óstaðfest upphæð.
Fjallað hefur verið um að KA greiði um 18 milljónir króna fyrir Danijel sem er 23 ára sóknarmaður, en það er óstaðfest upphæð.
„Óhætt er að fullyrða að koma Djurics hingað norður er ansi stór viðbót fyrir sumarið en hann mætir norður frá króatíska liðinu Istra," segir á heimasíðu KA.
Meira úr tilkynningu KA:
Djuric, sem er 23 ára gamall, er sóknarsinnaður miðjumaður og ætti að vera öllum knattspyrnuunnendum landsins vel kunnugur enda hefur hann verið einn besti leikmaður landsins undanfarin ár. Hann vakti verðskuldaða athygli í yngri flokkum Breiðabliks sem kom honum út til danska liðsins FC Midtjylland árið 2019 er hann var aðeins 16 ára gamall.
Hann lék með Midtjylland í þrjú ár uns hann sneri aftur til Íslands og gekk þá í raðir Víkings. Hjá Víkingum sýndi hann og sannaði hve frábær leikmaður hann er og var lykilmaður er liðið varð Íslands- og Bikarmeistari auk þess að gera frábæra hluti í Evrópu. Eftir tvö og hálft ár í Víkinni keypti svo Króatíska liðið Istra kappann en þar lék hann alls 19 leiki en hann gekk í raðir þeirra fyrir rétt rúmlega ári. Hann vildi þó stærra hlutverk og má með sanni segja að mikill áhugi hafi verið á kappanum þegar það varð ljóst að hann væri laus og gríðarlega jákvætt að sjá hann velja að ganga í raðir KA.
Djuric hefur leikið 3 A-landsleiki fyrir Íslands hönd auk þess að leika 47 leiki fyrir yngrilandsliðin. Koma hans norður er alvöru yfirlýsing fyrir komandi sumar en KA liðið sem er að fara í sitt tíunda sumar í röð í deild þeirra bestu ætlar sér að sjálfsögðu áfram stóra hluti og er von á frekari styrkingum á næstunni. Við bjóðum Danijel Djuric hjartanlega velkominn norður og hlökkum svo sannarlega til að sjá til hans í gula og bláa búningnum.
Athugasemdir



