Fotbolti.net
13.04.18 - 17:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

U21 landsliðsmaðurinn Aron Már í Víking R. (Staðfest)

Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs Víkings býður Aron velkominn til félagsins.

Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs Víkings býður Aron velkominn til félagsins.

Canon

Mynd: Víkingur R.

Aron Már Brynjarsson hefur samið við Víking Reykjavík og er hann núna samningsbundinn liðinu næstu tvö árin.

Aron Már spilar sem hægri bakvörður og er fæddur árið 1998.

Íslenskir fótboltaáhugamenn kannast kannski ekki við Aron en hann er fæddur og uppalinn í Svíþjóð þar sem hann hefur æft og spilað með yngri flokkum hjá Malmö FF. Aron á íslenska foreldra.
Aron er U21 árs landsliðsmaður Íslands en áður spilaði hann fyrir U19 ára landslið Svíþjóðar og U17 ára landslið Íslands.

Víkingur lítur á Aron sem góðan styrk fyrir sumarið og bindur vonir við að hann muni eiga bjarta framtíð hjá félaginu.

Það er stutt í að Pepsi-deildin hefjst en Fótbolti.net spáir Víkingi 11. sæti deildarinnar og þar með falli.

Komnir:
Atli Hrafn Andrason frá Fulham á láni
Gunnlaugur Hlynur Birgisson frá Víkingi Ó.
Halldór Jón Sigurður Þórðarson frá Aftureldingu
Jörgen Richardsen frá Kongsvinger
Rick ten Voorde frá Hapoel Ramat Gan
Sindri Scheving frá Val
Sölvi Geir Ottesen frá Guangzhou R&F
Aron Már Brynjarsson frá Malmö.

Farnir:
Geoffrey Castillion í FH
Ívar Örn Jónsson í Val
Veigar Páll Gunnarsson í KFG
Viktor Bjarki Arnarsson í HK
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.