Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. apríl 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Birgitta Sól í Aftureldingu (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Birgitta Sól Eggertsdóttir er búin að skrifa undir þriggja ára samning við Aftureldingu.

Hún hefur verið aðalmarkvörður Augnabliks undanfarin ár en er búin að spila alla leiki Aftureldingar/Fram í Lengjubikarnum í ár.

Birgitta er nýlega orðin 21 árs. Hún á 42 keppnisleiki að baki fyrir Augnablik og einn fyrir U19 landslið Íslands.

Birgitta er þó ekki allt sumarið hér á landi því hún stundar nám í Bandaríkjunum og er þar í háskólaliði Western Illinois.

„Það er Aftureldingu ánægjuefni að Birgitta valdi að semja við félagið en félög í Pepsi Max deildinni höfðu einnig áhuga á því að fá Birgittu til liðs við sig. Afturelding bíður Birgittu Sól velkomna til félagsins."
Athugasemdir
banner
banner