Fotbolti.net
13.04.19 - 12:30
Arnar Helgi Magnússon

„Erum ekki hræddir við það að mæta Van Dijk"

„Erum ekki hræddir við það að mæta Van Dijk"
Canon

Mynd: Getty Images

Olivier Giroud segir að liðsfélagar sínir séu ekki hræddir við að mæta einum besta varnarmanni deildarinnar á morgun, Virgil Van Dijk.
„Ég hef spilað á móti honum nokkrum sinnum og það er að sjálfsögðu alltaf erfitt. Hann er frábær leikmaður, stór og sterkur. Ég hef skorað nokkur mörk á móti honum, sama hvort það sé í deildinni eða með landsliðinu," segir Giroud.

„Við megum ekki vera hræddir að mæta honum eða neinum öðrum í Liverpool. Við munum vera 100% einbeittir á það að ná í sigur."

Giroud segir að Hazard eigi það skilið að vera leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.

„ Hazard myndi að vinna þetta ef að ég fengi að ráða þessu."

Flautað verður til leiks í stórleiknum á Anfield klukkan 15:30 á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.