Fotbolti.net
13.04.24 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland í dag - Verður Leverkusen sófameistari?

Leverkusen verður meistari ef Bayern og Stuttgart tapa í dag

Leverkusen verður meistari ef Bayern og Stuttgart tapa í dag

Canon

Mynd: EPA

Möguleiki er á því að Bayer Leverkusen verði þýskur deildarmeistari í dag, það er að segja ef Bayern München og Stuttgart tapa leikjum sínum.
Leverkusen er með sextán stiga forystu á toppnum og þarf það aðeins einn sigur til að gulltryggja titilinn.

Liðið spilar ekki fyrr en á morgun en ekki er útilokað að það verði sófameistari í dag. Bayern München tekur á móti Köln klukkan 13:30 og miðað við ójafnvægið sem liðið hefur verið í á þessari leiktíð er tap ekki úr myndinni.

Stuttgart er með 60 stig eins og Bayern, en liðið mætir Eintracht Frankfurt klukkan 16:30. Ef Bayern og Stuttgart tapa í dag þá verður Leverkusen meistari.

Leikir dagsins:
13:30 Bayern - Köln
13:30 RB Leipzig - Wolfsburg
13:30 Mainz - Hoffenheim
13:30 Gladbach - Dortmund
13:30 Bochum - Heidenheim
16:30 Stuttgart - Eintracht Frankfurt

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern9+2021
2Dortmund9+921
3Freiburg9+1019
4RB Leipzig9+1418
5Leverkusen9+316
6Werder9+215
7Elversberg9-113
8Stuttgart9012
9Hoffenheim9-112
10Frankfurt9-512
11Hamburger9-1012
12Mainz9-110
13Paderborn9-310
14Augsburg909
15Köln9-49
16Union Berlin9-147
17Schalke 049-66
18Gladbach9-134
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.