Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins, mun á morgun jafna leikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur og verða þær jafnar með 145 spilaða landsleiki. Ísland tekur á móti Úkraínu á Laugardalsvelli í undankeppni HM og hefst leikurinn 18:30.
Glódís, sem verður 31 árs í sumar, spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2012 í Skotlandi fyrir tæpum 14 árum síðan.
Glódís, sem verður 31 árs í sumar, spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2012 í Skotlandi fyrir tæpum 14 árum síðan.
„Vonandi jafna ég landsleikjamet á morgun, ef ég fæ að spila," sagði Glódís og hló á fréttamannafundi landsliðsins í dag.
„Ég er alveg búin að vita af þessu í smá tíma, maður getur ekki flýtt fyrir þessu, gerist bara þegar þetta gerist. Það hafa mörg ár liðið síðan ég kom fyrst inn í landsliðið og margt sem hefur gerst. Þetta er bara gaman og vonandi er alveg slatti eftir."
Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson var spurður út í fyrirliðann og þann kost hennar að vera langoftast til taks. Hún missti af leikjum fyrri part síðasta árs vegna meiðsla.
„Það skiptir gríðarlega miklu máli að þú sért alltaf með þína bestu leikmenn og að leikmenn gefi kost á sér. Hún hefur nánast alltaf verið til taks. Það er jákvætt og þegar þú ert kominn með svona marga landsleiki sýnir það að þú hefur ekki dottið oft út, ekki oft verið á bekknum, spilað alltaf, alltaf getað spilað eða þjösnast í gegnum það. Það er mikilvægt og mikilvægt fyrir hópinn að fyrirliðinn sé fyrirmynd í þessu líka; sé alltaf tilbúin að spila og að leggja sig alla í þetta. Það gefur öðrum mikið í hópnum að sjá þessa fyrirmynd að því leytinu til," sagði Steini.


