Fotbolti.net
13.05.17 - 12:30
Mist Rúnarsdóttir

Aníta Björk í ÍR (staðfest)

Aníta er komin aftur í uppeldisfélagið

Aníta er komin aftur í uppeldisfélagið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Aníta Björk Axelsdóttir er gengin til liðs við uppeldisfélag sitt ÍR á nýjan leik en hún kemur þaðan frá Fylki.
Aníta er eins og fyrr segir uppalin hjá ÍR þar sem hún spilaði fyrst með meistaraflokki sumarið 2011, þá 15 ára gömul.

Eftir tvö sumur í 1. deildinni með ÍR ákvað Aníta að söðla um og spilaði með Fylki tvö tímabil. Hún lék svo með Haukum á síðasta tímabili þar sem hún hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í efstu deild.

Aníta snýr nú aftur á heimaslóðir og mun leika með ÍR í 1.deildinni í sumar. Hún gæti verið í leikmannahópi liðsins sem mætir HK/Víking í Breiðholtinu kl.16:00 en leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.