Fotbolti.net
13.05.17 - 11:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Juventus búið að kaupa Benatia (Staðfest)

Benatia verður áfram í herbúðum Juventus.

Benatia verður áfram í herbúðum Juventus.

Canon

Mynd: Getty Images

Medhi Benatia hefur skrifað undir samning sem mun halda honum hjá Juventus í þrjú tímabil í viðbót. Benatia hefur verið í láni frá Bayern München á þessari leiktíð, en hann verður áfram hjá Juve.

Juventus ákvað að nýta sér ákvæði í lánssamningi hans og kaupa þennan þrítuga varnarmann fyrir 17 milljónir evra.
Hann hefur spilað 18 leiki á tímabilinu fyrir Juventus og hjálpað liðinu að komast á topp Seríu A og í úrslit Meistaradeildarinnar.

„Síðan ég kom hingað þá hef ég alltaf talað um að vera áfram hjá Juventus og ég vona að framtíðin verði góð hér,\" sagði Benatia eftir að hafa skrifað undir samninginn við Juventus.

Juventus getur orðið Ítalíumeistari í enn eitt skiptið á morgun. Þeim nægir jafntefli gegn Roma til þess að tryggja sér titilinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.