13.05.17 - 10:30
Mist Rúnarsdóttir
Kolbrún Tinna til Hauka á láni (Staðfest)

Kolbrún Tinna er komin til Hauka á láni

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kolbrún Tinna er komin til Hauka á láni

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Nýliðar Hauka í Pepsi-deild kvenna hafa fengið góðan liðsstyrk en varnarmaðurinn Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir er komin til liðsins á lánssamning frá Stjörnunni.
Kolbrún Tinna er 18 ára unglingalandsliðskona en hún hefur spilað 21 leik með U17 ára landsliðinu. Hún er uppalin hjá Fjölni þar sem hún steig sín fyrstu skref í meistaraflokki sumarið 2014.
Varnarmaðurinn efnilegi gekk til liðs við Stjörnuna fyrir síðasta tímabil og var í byrjunarliðinu fyrstu fjórar umferðir Pepsi-deildarinnar. Hún vakti athygli fyrir góðan leik og var til að mynda valin í úrvalslið fyrstu tveggja umferða hjá Fótbolta.net. Kolbrún lenti svo í meiðslum og tók ekki frekari þátt í mótinu.
Hún er hinsvegar orðin heil og lék með Stjörnunni á undirbúningstímabilinu. Henni hefur þó ekki tekist að brjóta sér leið inn í byrjunarlið Íslandsmeistaranna og einu mínútur hennar í Pepsi-deildinni í sumar komu einmitt í 5-1 sigri Stjörnunnar á Haukum í fyrstu umferðinni. Þá kom hún inná sem varamaður seint í leiknum.
Haukar sitja stigalausar á botni Pepsi-deildarinnar eftir þrjár umferðir og fagna eflaust liðsstyrknum.