Fotbolti.net
13.05.17 - 11:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Reynir Már í HK (Staðfest)

Reynir Már í leik með Þór.

Reynir Már í leik með Þór.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Reynir Már Sveinsson hefur gengið til liðs við HK. Hann kemur til Kópavogsliðsins frá Þór á Akureyri.

Reynir Már er uppalinn Fjölnismaður, en hann hefur einnig spilað með Birninum og Vængjum Júpiters.
Reynir er fæddur árið 1992 en hann spilar sem framherji. Hann spilaði tíu leiki með Þór í deild og bikará síðustu leiktíð.

Hann hefur nú skipt yfir í HK, en þeim er spáð 9. sæti í árlegri spá þjálfara og fyrirliða fyrir Inkasso-deildina.

HK vann í gær dramatískan sigur á Leikni R. þar sem Ágúst Freyr Hallsson skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. HK er með þrjú stig að tveimur leikjum loknum, en þeir töpuðu fyrsta leiknum gegn Fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.