13.05.18 - 20:50
Ingólfur Páll Ingólfsson
Ítalía: Juventus meistari (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juventus er ítalskur meistari þetta árið en það var ljóst eftir leiki kvöldsins.
Tveir leikir voru á dagskrá í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Roma tók á móti Juventus og Napoli kíkti í heimsókn til Sampdoria.
Juventus þurfti aðeins eitt stig til að tryggja sér titilinn. Meistararnir spiluðu ekki vel í fyrri hálfleik en hvorugu liðinu tókst að skapa sér almennileg færi.
Nainggolan fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 68. mínútu. Hvorugu liðinu tókst að skora og endar Juventus því í efsta sætinu þetta tímabilið.
Napoli sigraði Sampdoria með tveimur mörkum gegn engu. Arkadiusz Milik kom gestunum yfir og Raul Albiol innsiglaði sigurinn á 80. mínútu. Það dugði þó ekki til og endar Napoli því í öðru sæti.
Ein umferð er enn eftir af deildinni en hún verður leikinn næstkomandi sunnudag.
Sampdoria 0-2 Napoli
0-1 Milik (\'72)
0-2 Albiol (\'80)
Roma 0-0 Juventus