Fotbolti.net
13.05.18 - 14:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sito í Grindavík (Staðfest)

Sito er mættur í Grindavík.

Sito er mættur í Grindavík.

Canon

Mynd: Grindavík

Grindavík hefur samið við Spánverjann José Enrique Seoane Vergara, sem er betur þekktur undir nafninu Sito Seoane.

Sito er 29 ára sóknarmaður. Hann þekkir vel til hér á landi eftir að hafa áður spilað með ÍBV og Fylki.

Hann kom til ÍBV seinni part sumarsins 2015 og skoraði þá sex mörk í 11 leikjum. Eftir sumarið 2015 fór hann í Fylki og stoppaði hann í eitt tímabil þegar í Árbæinn var komið.

Í Fylki gekk honum verr að skora fótboltamörk, var aðeins með tvö þannig stykki í 20 deildarleikjum.
Hann sagði skilið við Fylki í nóvember 2016 og skrifaði þá undir samning við Ottawa Fury í Kanada.

Grindavík ætlar að treysta á að Sito komi með markaskóna.

„Okkur fannst mikilvægt að styrkja framlínuna fyrir komandi átök í Pepsi deildinni og teljum við okkur vera vel mannaða í dag og barátta um allar stöður á vellinum. Gæti orðið einhver höfuðverkurinn hjá þjálfurum okkar að velja hópinn í næsta leik,\" segir í tilkynningu frá Grindavík.

Grindavík átti leik í Pepsi-deildinni í gær gegn KR og endaði hann með 1-1 jafntefli. Næsti leikur Grindavíkur er gegn Víkingi R. næstkomandi föstudag.

Komnir:
Aron Jóhannsson frá Haukum
Jóhann Helgi Hannesson frá Þór
Sito Seoane frá Ottawa Fury

Farnir:
Andri Rúnar Bjarnason í Helsingborg
Aron Freyr Róbertsson í Keflavík
Gylfi Örn Á Öfjörð í ÍR
Hákon Ívar Ólafsson í Fjarðabyggð
Magnús Björgvinsson í KFG
Milos Zeravica til Borac Banja Luka
Sito lék áður með Fylki og ÍBV.

Sito lék áður með Fylki og ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.