13.05.18 - 14:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Sara Björk deildarmeistari (Staðfest)

Sara er 27 ára og gríðarlega sigursæl.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sara er 27 ára og gríðarlega sigursæl.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir er þýskur deildarmeistari annað árið í röð með liði sínu Wolfsburg.
Wolfsburg vann 2-0 sigur á SGS Essen í þýsku úrvalsdeildinni á þessum sunnudegi.
Það var hin bandaríska Ella McLeod sem skoraði bæði mörk Wolfsburg snemma í seinni hálfleiknum.
Wolfsburg vann 2-0 sigur á SGS Essen í þýsku úrvalsdeildinni á þessum sunnudegi.
Það var hin bandaríska Ella McLeod sem skoraði bæði mörk Wolfsburg snemma í seinni hálfleiknum.
Sara var ekki í leikmannahópi Wolfsburg í dag, henni var líklega bara gefin hvíld. Framundan eru tveir úrslitaleikir, bikarúrslitaleikur í Þýskalandi og úrslitaleikur í Meistaradeildinni. Liðið mætir Bayern München í bikarúrslitum og Lyon í Meistaradeildarúrslitum.
Sara er algjör lykilmaður í liði Wolfsburg en þetta hennar annar deildartitill á jafnmörgum árum með liðinu.
Wolfsburg á enn eftir að spila tvo leiki í þýsku úrvalsdeildinni þannig að ljóst er að yfirburðirnir eru miklir.

YEEEEEEEEEES💪💪💪 2-0 vs. Essen!
— VfL Wolfsburg EN (@VfLWolfsburg_EN) May 13, 2018
The #vflladies are German champions 2018💚💚💚💚💚
Brilliant, girls! pic.twitter.com/7Ed8FY5wQJ