13.05.19 - 12:30
Arnar Daði Arnarsson
Dagur Austmann í Þrótt (Staðfest)

Dagur Austmann í leik með ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagur Austmann í leik með ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dagur Austmann Hilmarsson hefur gengið til liðs við Þróttar í Inkasso-deildinni frá ÍBV. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.
Dagur er að koma til baka eftir að hafa fótbrotnað í september á síðasta ári. Hann kom við sögu í 1-0 sigri ÍBV á Stjörnunni í Mjólkurbikarnum fyrr á þessu tímabili. Það var hans fyrsti leikur í átta mánuði.

Dagur lék 18 leiki með ÍBV síðasta sumar áður en hann meiddist en sumarið 2017 lék hann 13 leiki með Aftureldingu í 2. deildinni.
Þróttur er með eitt stig að loknum tveimur umferðum í Inkasso-deildinni en liðið mætir Víkingi Ólafsvík í 3. umferðinni á föstudaginn næstkomandi.
Sjá einnig:
Dagur Austmann lék sinn fyrsta leik í átta mánuði