Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   mán 13. maí 2024 08:30
Hafliði Breiðfjörð
Atli Þór virtist missa fæturna og meiðast á holu á KR-velli
Atli Þór skorar markið í gær.
Atli Þór skorar markið í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Þór Jónasson framherji HK kom liðinu í 1 - 0 gegn KR í gær með skrípamarki eftir að hafa nýtt sér undarleg mistök hjá heimamönnum í KR.


Lestu um leikinn: KR 1 -  2 HK

Þetta var annar heimaleikur KR á grasvellinum á Meistaravöllum en það verður seint sagt að völlurinn sé í frábæru standi.

Liðsfélagar Atla hjá HK náðu ekki að fagna markinu innilega með honum því hann lá meiddur í kjölfar þess að hann kom boltanum í netið.

Á meðfylgjandi myndum af því þegar Atli skorar virðist sem hann stígi í holu í teignum rétt eftir að hafa rennt boltanum í átt að tómu markinu og misst fæturna og stór sandstrókur gaus upp úr vellinum. Atli varð í kjölfarið að fara af velli meiddur.

HK vann leikinn 1 - 2 en heimamenn fengu tvö rauð spjöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner