Grindavík, sem spilar í Lengjudeildinni, vann dramatískan sigur á ÍA, sem spilar í Bestu deildinni, í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld.
Skagamenn komust yfir eftir stundafjórðung þegar Erik Tobias Sandberg skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Guðmundi Þórarinssyni.
Skagamenn komust yfir eftir stundafjórðung þegar Erik Tobias Sandberg skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Guðmundi Þórarinssyni.
Markús Páll Ellertsson var nálægt því að bæta við öðru markinu snemma í seinni hálfleik en hann skaut í slá. Það stefndi í sigur ÍA en Gunnleifur Orri Gunnleifsson jafnaði metin fyrir Grindavík í blálokin.
Grípa þurfti því til framlengingar. Þar var önnur eins dramatík. Þegar sjö mínútur voru til loka venjulegs leiktíma í framlengingunni fylgdi Lárus Orri Ólafsson eftir skoti frá Rafael Victor og kom Grindavík yfir.
Skagamenn gáfust ekki upp því Viktor Jónsson skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf fra Hauki Andra Haraldssyni í lokin og grípa þurfti því til vítaspyrnukeppni.
Rafael Victor og Viktor Jónsson skoruðu úr fyrstu spyrnunum en Gunnleifur Orri klikkaði á öðru víti Grindvíkinga. Allir skoruðu í kjölfarið og það endaði með því að Haukur Andri tryggði Skagamönnum sigurinn.
Stjarnan og KR áttust við í stórleik dagsins. Liðin áttust við í deildinni í síðustu viku þar sem KR vann magnaðan endurkomusigur eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik.
Eiður Gauti Sæbjörnsson kom KR-ingum yfir snemma leiks í kvöld. Birnir Snær Ingason tapaði boltanum á slæmum stað og Aron Sigurðarson kom boltanum á Eið sem skoraði fyrsta mark leiksins.
Emil Atlason jafnaði metin stuttu síðar þegar hann skallaði boltann í netið eftir aukaspyrnu frá Daníel Finns Matthíassyni. Örvar Eggertsson fékk dauðafæri til að koma Stjörnumönnum yfir eftir hálftíma leik en Halldór Snær Georgsson sá við honum.
Emil kom hins vegar Stjörnunni í forystu undir lok fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Birni Snæ. Birnir gerðist hins vegar brotlegur inn í vítateig Stjörnunnar stuttu síðar en Árni Snær Ólafsson varði vítið frá Aroni Sigurðarsyni.
KR-ingum tókst ekki að skapa sér almennileg færi undir lokin og sigur Stjörnunnar staðreynd.
ÍA 2 - 2 Grindavík (5-4 í vítaspyrnukeppni)
1-0 Erik Tobias Tangen Sandberg ('16 )
1-1 Gunnleifur Orri Gunnleifsson ('90 )
1-2 Lárus Orri Ólafsson ('113 )
2-2 Viktor Jónsson ('120 )
Lestu um leikinn
Stjarnan 2 - 1 KR
0-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('7 )
1-1 Emil Atlason ('11 )
2-1 Emil Atlason ('44 )
2-1 Aron Sigurðarson ('45 , misnotað víti)
Lestu um leikinn



