Hulda Björg Hannesdóttir (2000), fyrirliði Þórs/KA, varð fyrir því óláni að slíta liðband í hné undir lok síðasta mánaðar. Atvikið átti sér stað undir lok leiks í 2. umferð Bestu deildarinnar þegar Hulda ætlaði sér að komast í boltann inn á vítateig Grindavíkur/Njarðvíkur.
Hún þurfti að bíða nokkra daga eftir því að komast í myndatöku og eftir hana kom í ljós að liðband væri slitið.
Hún þurfti að bíða nokkra daga eftir því að komast í myndatöku og eftir hana kom í ljós að liðband væri slitið.
„Að fá niðurstöðuna var bæði svekkjandi og á sama tíma ekki svekkjandi. Sjúkraþjálfarar voru búnir að sjá þetta fyrir með liðbandið, en það var spurning með annað eins og liðþófa og krossband. Það góða var að krossbandið er í lagi, en það var auðvitað leiðinlegt að heyra niðurstöðuna," segir Hulda Björg.
Tímabilinu lokið
Er raunhæft að stefna á leik í lok móts?
„Ég hef fengið að heyra að tímabilinu sé lokið hjá mér, það er misjafnt hvað ég heyri með endurkomuferlið. Ef allt gengur frábærlega og ég spila í lok sumars, þá er það bara plús. En eins og staðan er núna er ég ekki að horfa í það. Það er ennþá óvíst hvort ég þurfi að fara í aðgerð eða ekki. Það eru ennþá ósvaraðar spurningar."
„Ég fæ vonandi að hitta sérfræðing í Orkuhúsinu sem er búinn að sjá myndir og vill fá að hitta mig. Hann gæti svo vonandi sagt til um hvort ég þurfi aðgerð eða ekki. Eins og ég skil þetta þá slitnaði liðbandið frá beininu, ekki í tvennt. Það eru allavega allir í kringum mig að reyna sitt besta."
„Ég er á hækjum og er í spelku, tók fyrstu æfinguna í dag til þess aðallega að virkja lærvöðvann."
Hvernig lítur sumarið út, hvað er framundan?
„Ég er að þjálfa 7. flokkinn hjá Þór, ég er í einhverri pásu frá því núna en held því svo vonandi áfram. Svo er það nýtt hlutverk í liðinu, reyni að sinna því eins vel og ég get, reyni að hitta stelpurnar eins oft og ég get. Mögulega fæ ég að prófa eitthvað annað í sumar."
Verður erfitt að þurfa að vera fyrir utan völlinn
Hvernig verður að fylgjast með liðinu af hliðarlínunni?
„Það hefur verið mjög erfitt að geta ekki verið inn á og hjálpað liðinu, sérstaklega á meðan við höfum ekki enn náð í þessi þrjú stig, sigur, til þessa. Ég efast ekki um það að fyrsti sigurinn komi fljótlega. En það verður klárlega mjög erfitt að þurfa að vera fyrir utan völlinn, sama hvort það gangi vel eða illa."
„Það er fullt af mjög góðum leikmönnum í hópnum okkar með góðan karakter. Við höfum sýnt að við getum komið til baka í leikjum, en við þurfum að byrja leikina aðeins betur, verja markið okkar betur og skora fleiri mörk."
Tvöfalt högg
Hulda meiddist undir lok leiks í Njarðvík. Í kjölfar meiðslanna skoraði Grindavík/Njarðvík sigurmark leiksins. Var það tvöfalt áfall?
„Það var svakalega vont að sitja fyrir utan völlinn og missa leikinn niður í þetta. Það var tvöfalt högg. Ég fann strax að það gerðist eitthvað í hnénu, bara spurning hvað það væri, og svo kom markið ofan á það. Þetta voru ekki góðar síðustu fimm mínútur leiksins."
Ætlaði að skalla boltann en heyrði smell
Hvað var það sem gerðist?
„Ég komst ekki að því strax hvað gerðist. Við áttum aukaspyrnu í lok leiks, Hildur átti frábæra fyrirgjöf og sé boltann detta á hausinn á mér og ég ætla skalla boltann inn. Svo um leið og ég stíg í vinstri fótinn til að hoppa upp þá smellur eitthvað í hnénu. Ég horfði margoft á þetta til að sjá hvað gerðist. Það er eins og ég lendi á jarkanum eða snúi ökklann og við það fari hnéð út. Grasið var ekki tilbúið, það sást á myndbandinu að jörðin féll undan mér og ég bjó til risaholu. Völlurinn var frekar laus í sér. Ég veit ekki hvort að það sé ástæðan fyrir meiðslunum. En ég fann strax að það var eitthvað sem var ekki í lagi."
„Ég mun vera á bekknum í öllum leikjum hérna heima og spurning með útileikina. Ég ætla 100% að vera hluti af liðinu í kringum leikina og hjálpa bæði þjálfurunum og liðinu eins og ég get," segir Hulda að lokum.
Næsti leikur Þórs/KA verður heimaleikur gegn Stjörnunni á föstudag í Mjólkurbikarnum.
Besta kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Breiðablik | 4 | 4 | 0 | 0 | 11 - 4 | +7 | 12 |
| 2. ÍBV | 4 | 4 | 0 | 0 | 12 - 7 | +5 | 12 |
| 3. FH | 4 | 2 | 1 | 1 | 6 - 5 | +1 | 7 |
| 4. Þróttur R. | 4 | 2 | 0 | 2 | 6 - 5 | +1 | 6 |
| 5. Grindavík/Njarðvík | 4 | 2 | 0 | 2 | 6 - 6 | 0 | 6 |
| 6. Víkingur R. | 4 | 2 | 0 | 2 | 7 - 8 | -1 | 6 |
| 7. Stjarnan | 4 | 1 | 1 | 2 | 6 - 6 | 0 | 4 |
| 8. Valur | 4 | 1 | 0 | 3 | 6 - 9 | -3 | 3 |
| 9. Þór/KA | 4 | 0 | 2 | 2 | 4 - 7 | -3 | 2 |
| 10. Fram | 4 | 0 | 0 | 4 | 3 - 10 | -7 | 0 |



