13.06.17 - 11:11
Magnús Már Einarsson
Griezmann framlengir við Atletico Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann hefur framlengt samning sinn við Atletico Madrid til ársins 2022.
Þessi magnaði franski sóknarmaður hefur verið sterklega orðaður við Manchester United undanfarna mánuði.
Eftir að ljóst varð að Atletico Madrid má ekki kaupa nýja leikmenn fyrr en í janúar á næsta ári þá lá fyrir að Griezmann fengi ekki að fara.
Griezmann hefur nú staðfest það með því að skrifa undir nýjan samning.
Hinn 26 ára gamli Griezmann hefur skorað 83 mörk í 160 leikjum síðan hann kom til Atletico frá Real Sociedad árið 2014.

🔴⚪️🔴 @AntoGriezmann amplía su contrato hasta 2022 🖊⚽️
— Atlético de Madrid (@Atleti) June 13, 2017
¡Enhorabuena! 👏🙌
➡️ https://t.co/2HLjbmsG8z#Griezmann2022 #AúpaAtleti pic.twitter.com/heuqHwUUFO