Fotbolti.net
13.06.17 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Ranieri tekinn við Nantes (Staðfest)

Ranieri er mættur aftur í boltann.

Ranieri er mættur aftur í boltann.

Canon

Mynd: Getty Images

Claudio Ranieri, fyrrum stjóri Leicester, hefur verið ráðinn þjálfari Nantes í Frakklandi.

Ranieri tekur við af Sergio Conceicao sem hætti á dögunum til að taka við Porto í heimalandi sínu Portúgal.
Kolbeinn Sigþórsson er á mála hjá Nantes en hann hefur verið meiddur síðan í fyrrasumar og óvíst er hvenær hann snýr aftur.

Í Frakklandi eru reglur sem segja að félög megi ekki ráða þjálfara sem eru 65 ára eða eldri en Ranieri fékk sérstaka undanþágu til að taka við Nantes.

Ranieri stýrði Leicester til sigurs í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2015/2016 en hann var síðan rekinn í febrúar síðastliðnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.