Fotbolti.net
13.06.18 - 19:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Færeyjar: Heimir og Binni Hlö í bikarúrslit

Heimir tók við HB í vetur.

Heimir tók við HB í vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson, fyrrum þjálfari FH, og Brynjar Hlöðversson, fyrrum miðjumaður Leiknis, eru komnir í bikarúrslitaleikinn í færeyska fótboltanum.

HB mættir AB Argir í tveggja leikja undanúrslitaeinvígi. Eftir 2-0 sigur í fyrri leiknum á heimavelli gerði HB sér lítið fyrir og vann 4-1 sigur á útivelli í kvöld.
HB hefur ekki tapað fótboltaleik síðan 18. mars, árangurinn hefur verið magnaður. Liðið er á toppi færeysku úrvalsdeildarinnar.

Mótherji HB í úrslitaleiknum verða nágrannarnir í B36. Úrslitaleikurinn verður 25. ágúst næstkomandi.

Bikarúrslitaleikur (staðfest) :) #fotboltinet https://t.co/ATrozN8csx

— Brynjar Hlöðversson (@BinniHlo) June 13, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.