England 1 - 0 Króatia
1-0 Raheem Sterling ('57 )
1-0 Raheem Sterling ('57 )
England og Króatía áttust við í fyrsta leik dagsins á EM. Leikið var á Wembley heimavelli enska landsliðsins.
Liðin leika í D-riðli ásamt Skotlandi og Tékklandi sem mætast á morgun.
Það var markalaust í hálfleik en Englendingar byrjuðu leikinn af krafti en náðu ekki að nýta sér það í fyrri hálfleik. Það var síðan þegar tæplega klukkutími var liðinn sem Sterling skoraði eina mark leiksins. Lokatölur 1-0 fyrir England
Englendingar eru, eins og oft áður, mjög bjartsýnir að liðið fari langt í mótinu og er þetta góð byrjun.
Athugasemdir