Fotbolti.net
15.06.26 - 09:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steypustöðin

Sterkasta lið 8. umferðar - Systurnar þarna saman

Ída Marín og Thelma Lóa.

Ída Marín og Thelma Lóa.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Áttunda umferð Bestu deildar kvenna var leikin um helgina. Stjarnan gerði sér lítið fyrir og skellti Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks á Kópavogsvelli, 1-3.

Óskar Smári Haraldsson er því auðvitað þjálfari umferðarinnar en Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir, Telma Steindórsdóttir og Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir eru allar í sterkasta liði umferðarinnar. Sú síðastnefnda er heldur betur að vakna eftir að hafa farið hægt af stað í sumar.
Sterkasta lið 7. umferðar - Það var haldið partý
TENGT EFNI

Sterkasta lið 7. umferðar - Það var haldið partý



FH kom sér á topp deildarinnar eftir þetta tap hjá Blikum. FH vann stórsigur á Víkingum og þar voru systurnar Ída Marín og Thelma Lóa Hermannsdætur bestar. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir átti jafnframt góðan leik á miðsvæðinu hjá FH og skoraði glæsilegt mark.

Grindavík/Njarðvík vann útisigur á Fram þar sem Tinna Hrönn Einarsdóttir var maður leiksins.

ÍBV náði í fínt stig í Laugardalnum. Niðurstaðan þar var 0-0 þar sem Guðný Geirsdóttir var maður leiksins. Unglingalandsliðskonan Kristín Klara Óskarsdóttir átti sömuleiðis góðan leik fyrir Eyjakonur.

Þá voru miðverðirnir Arna Sif Ásgrímsdóttir og Lillý Rut Hlynsdóttir öflugar í markalausu jafntefli Vals og Þórs/KA á Hlíðarenda.
Við stöndum upp og klöppum.

Við stöndum upp og klöppum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úlfa Dís er að vakna til lífsins.

Úlfa Dís er að vakna til lífsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arna Sif spilaði vel gegn sínu gamla félagi.

Arna Sif spilaði vel gegn sínu gamla félagi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik18+2537
2FH18+2437
3ÍBV18-327
4Stjarnan18+426
5Þróttur R.18-323
6Grindavík/Njarðvík18-822
7Fram18-1522
8Valur18-920
9Víkingur R.18-1120
10Þór/KA18-419
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.