Fotbolti.net
15.06.26 - 09:21
Kári Snorrason

Cucurella til Real Madrid (Staðfest)

Genginn í raðir Real Madrid.

Genginn í raðir Real Madrid.

Canon

Mynd: EPA

Real Madrid hefur fest kaup á spænska Marc Cucurella frá Chelsea. Bakvörðurinn skrifar undir sex ára samning við félagið.

Real Madrid greiðir rúmlega 50 milljónir punda fyrir Cucurella en hann var samningsbundinn Chelsea til ársins 2029. Lundúnaliðið borgaði rúmar 60 milljónir punda fyrir þann spænska fyrir fjórum árum.
Cucurella verður fjórði leikmaðurinn sem Real Madrid semur við á nokkrum vikum, en Ibrahima Konate, Bernardo Silva og Denzel Dumfries munu allir ganga í raðir félagsins um mánaðamótin.

Bakvörðurinn er nú staddur í Bandaríkjunum með spænska landsliðinu á heimsmeistaramótinu en Spánn mætir Grænhöfðaeyjum síðar í dag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.