Fotbolti.net
15.06.26 - 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkust í 8. umferð - Fór fyrir ótrúlegum sigri

Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir.

Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir er sterkasti leikmaður 8. umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar.

Hún fór fyrir sínu liði, Stjörnunni, í mögnuðum 1-3 útisigri gegn Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks.
Sterkasta lið 8. umferðar - Systurnar þarna saman
TENGT EFNI

Sterkasta lið 8. umferðar - Systurnar þarna saman

„Erfitt að velja hana ekki þegar hún skoraði tvö í dag. Fyrsta markið var flott skot, seinna markið þá var hún mjög vel staðsett inn í teignum," skrifaði Arngrímur Alex Birgisson í skýrslu sinni frá leiknum.

Ingibjörg Lúcía hefur verið mjög drjúg fyrir Stjörnuna af miðsvæðinu í sumar og skorað mikilvæg mörk, þar á meðal auðvitað þessi tvö mörk í þessum leik.

Hún er alin upp hjá Sindra en spilaði með ÍBV áður en hún gekk í raðir Stjörnunnar árið 2020. Hún skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við Stjörnuna í mars á þessu ári.

„Frá fyrsta degi hefur hún sýnt mikla leiðtogahæfni og fagmennsku í allri sinni nálgun, og mun vera mikilvæg í þeirri uppbyggingu liðsins sem stefnan er sett á á næstkomandi árum," sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, þegar Ingibjörg Lúcía skrifaði undir nýjan samning en hún er svo sannarlega í lykilhlutverki hjá Garðabæjarfélaginu.
Í leik með Stjörnunni í sumar.

Í leik með Stjörnunni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.