Michael Oliver átti að dæma leikinn í nótt

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enski úrvalsdeildardómarinn Michael Oliver átti að dæma viðureign Fílabeinsstrandarinnar gegn Ekvador sem fór fram í nótt en missti af leiknum vegna meiðsla.
Oliver, 41 árs, varð fyrir minniháttar meiðslum og því dæmdi Frakkinn Francois Letexier viðureignina í nótt.
FIFA býst við að Oliver verði klár í slaginn á næstu dögum til að dæma á heimsmeistaramótinu.
Oliver er einn af tveimur enskum aðaldómurum á mótinu en hinn er Anthony Taylor. Gary Beswick, Adam Nunn, Stuart Burt og James Mainwaring eru aðstoðardómararnir frá Englandi.
Oliver býr yfir mikilli reynslu á sínum dómaraferli. Hann dæmdi meðal annars í 8-liða úrslitum á HM 2022 þegar Króatía mætti Brasilíu og var meðal dómara á EM 2024.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!