Fotbolti.net
14.06.26 - 20:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Haraldur Freyr: Held að það verði ekkert mál

Auglýsing
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.

Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta eru ekki góð úrslit, en frammistaðan var fín hjá okkur heilt yfir," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir 1-2 tap gegn FH í kvöld.

„Í seinni hálfleik fer leikurinn nánast fram á þeirra vallarhelmingi en við náum ekki að skapa okkur nóg af mikið af færum. Við skorum of seint. Ef við hefðum skorað fyrr hefðum við sett alvöru pressu á FH-ingana."
„Það vantaði aðeins upp á baráttu, að vinna návígi og skalla, og ekki láta litla hluti fara í taugarnar á sér. Mér fannst það vanta. Við sköpum alveg nóg til að geta unnið leikinn eða fara allavega með eitt stig úr honum."

Keflavík hefur núna tapað tveimur leikjum í röð eftir að hafa spilað mjög vel þar áður. Verður erfitt að ná upp sjálfstraustinu aftur?

„Nei, alls ekki. Ég held að það verði ekkert mál."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.