Rodri skeit í sig af hræðslu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Rodri var valinn besti fótboltamaður heims á verðlaunaafhendingu Ballon d'Or 2024 eftir að hann hjálpaði Manchester City að vinna ensku úrvalsdeildina og Spáni að vinna Evrópumótið.
Hann er á sínum stað í leikmannahópi Spánverja sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu og segist dreyma um að vinna keppnina.
„Alla fótboltamenn dreymir um að vinna heimsmeistaramótið. Þetta er stærsta fótboltamót í heimi og það er mikið af tilfinningum. Ég myndi ekki hika við að skila inn Gullboltanum (Ballon d'Or) til að vinna HM og tryggja aðra stjörnu á spænsku landsliðstreyjuna," segir Rodri, en Spánverjar unnu HM í fyrsta sinn í sögu sinni árið 2010 og öðluðust þannig fyrstu stjörnuna.
Á dögunum var myndbandi frá landsliðsæfingu Spánverja lekið á veraldarvefinn þar sem Gavi, miðjumaður Barcelona, sést brjóta nokkuð hressilega á Rodri sem hefur verið að glíma við alvarleg meiðsli undanfarin ár.
„Gavi er mikill orkubolti og ekki með neina síu, honum er alveg sama. Hann leggur sig alltaf 100% fram. Við elskum persónuleikann hans en við þurfum stundum að minna hann á að við erum á æfingu en ekki keppnisleik.
„Ég vissi ekki að það væri verið að taka upp æfinguna en ef ég er heiðarlegur þá skeit ég í mig af hræðslu þegar ég fann fyrir snertingunni."
Rodri var þá spurður út í ummæli Enrique Riquelme sem tapaði forsetakosningum Real Madrid fyrr í júní. Riquelme lofaði að krækja í Rodri úr röðum Man City ef hann yrði kjörinn sem forseti.

„Ég veit ekki hvaðan þetta kemur! Ég skil að þetta er partur af fótboltaheiminum en ég er ekkert búinn að spá í framtíðinni. Þessa stundina er ég bara einbeittur að því að gera vel á HM. Ég er ennþá samningsbundinn Man City."
Rodri er 29 ára gamall og með eitt ár eftir af samningi sínum við City.

TENGT EFNI
Riquelme: Búnir að tala við umboðsmann Rodri
„Ég veit ekki hvaðan þetta kemur! Ég skil að þetta er partur af fótboltaheiminum en ég er ekkert búinn að spá í framtíðinni. Þessa stundina er ég bara einbeittur að því að gera vel á HM. Ég er ennþá samningsbundinn Man City."
Rodri er 29 ára gamall og með eitt ár eftir af samningi sínum við City.

TENGT EFNI
Rodri tekur ákvörðun eftir HM
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!