Fotbolti.net
14.06.26 - 19:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jói Kalli: Það sem er skemmtilegast fyrir mig að sjá sem þjálfara

Auglýsing
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH.

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er alltaf skemmtilegra að vinna fótboltaleiki," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eftir 1-2 sigur gegn Keflavík í Bestu deildinni í kvöld.

Var þetta fyrsti sigur FH-inga í deildinni í sumar og eru þeir núna komnir með fimm stig.
„Mér fannst þetta vera verðskuldað. Það var enginn heppnisstimpill á þessu fannst mér. Við mætum mjög grimmt inn í fyrri hálfleikinn sérstaklega og sköpuðum okkur tækifæri til að skora fleiri mörk jafnvel. Við vitum að það búa gæði í þessum hóp en það sem var skemmtilegast að sjá fyrir mig sem þjálfara var vinnusemin, samheldnin, pressan og að við vorum að fagna þessum litlu augnablikum í leiknum," sagði Jói Kalli.

Það voru 14 dagar á milli leikja og það var kærkomið fyrir FH-inga. „Það var í raun og veru gott. Við vorum á þannig tímapunkti með hópinn okkar, búnir að vera laskaðir. Við nýttum tímann virkilega vel. Það var gaman að fylgjast með strákunum hversu mikið þeir voru tilbúnir að leggja á sig í þessari pásu og þeir uppskáru eftir því í dag."

Umræðan hefur verið mikil í kringum FH eftir erfiða byrjun á mótinu. Horfðir þú á þennan leik sem einhvers konar úrslitaleik?

„Nei, alls ekki. Þetta er leikur sem við komum inn í það með hugarfar til að vinna, ekki úrslitaleikur en klárlega leikur sem við vorum staðráðnir í að taka stigin þrjú sem voru í boði."

Er það léttir að ná fyrsta sigrinum?

„Nei, bara gleði."

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
FH vann sinn fyrsta sigur í Bestu deildinni þetta sumarið.

FH vann sinn fyrsta sigur í Bestu deildinni þetta sumarið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.