Fotbolti.net
14.06.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Linta: Strákarnir eiga allt hrós skilið

Auglýsing
Linta: Strákarnir eiga allt hrós skilið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er auðvitað himinlifandi með sigurinn," sagði Alexander Linta, þjálfari ÍBV, eftir sigur liðsins á Þór í dag. ÍBV fór upp fyrir Þór og upp úr fallsæti með sigrinum.
„Strákarnir eiga allt hrós skilið. Ég er ánægður með stigin þrjú og nokkur augnablik í leiknum. Við vissum hvað við vildum gera. Við höfum verið óheppnir að fá á okkur mörk, við reyndum að vera þéttari."

„Við höfum alltaf verið að skapa okkur færi en nú erum við að klára þau. Það er ein af ástæðunum fyrir því að við erum að vinna leiki. Við hefðum getað skorað fleiri mörk í dag en ég er ánægður með frammistöðuna."

„Ég er alltaf jákvæður. Ég var jákvæður þegar við náðum ekki í úrslit. Ég mun aldrei gefast upp, ég get komið með þann anda í liðið en ég tel að þeir séu með andann."

Bjarki Björn Gunnarsson skoraði tvennu og lagði upp eitt. Hann var einnig með þrjár stoðsendingar í 6-1 sigri á Keflavík í síðustu umferð.

„Bjarki er mjög góður leikmaður. Hann kemur með mikið að borðinu, hann var með nokkrar stoðsendingar í síðasta leik og skorar núna. Þetta er ekki bara Bjarki, ég er mjög ánægður með alla hina. Þetta er góður hópur af leikmönnum og strákum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.