Fotbolti.net
13.06.26 - 14:04
Brynjar Ingi Erluson

Segir veikar forsendur fyrir því að hleypa Partey ekki inn í Kanada - „Hefur ekki verið fundinn sekur“

Segir veikar forsendur fyrir því að hleypa Partey ekki inn í Kanada - „Hefur ekki verið fundinn sekur“
Canon

Mynd: EPA

Kofi Adams, íþrótta- og tómstundamálaráðherra Gana, segist ekki skilja ákvörðun Kanada um að hleypa ekki miðjumanninum Thomas Partey inn í landið.
Partey ekki hleypt inn í Kanada
TENGT EFNI

Partey ekki hleypt inn í Kanada

Kanada hafnaði beiðni Partey um að koma inn í landið vegna ákærumáls á hendur honum í Lundúnum.

Hann hefur verið kærður fyrir sjö nauðganir og eitt kynferðisbrot. Á þeim grundvelli neituðu kanadísk yfirvöld honum inngöngu í landið, en stjórnvöld í Gana neita að sætta sig við þessa ákvörðun.

Adams, sem hefur sinnt embætti sínu sem íþrótta- og tómstundamálaráðherra Gana, segir þunn rök fyrir því að neita Partey inngöngu í landið.

„Thomas var einn af leikmönnunum sem var beðinn um að fara í sendiráðið í London vegna lífkennaskráningar og í gærmorgun fengum við þær fréttir að ákveðið hefði verið að meina honum inngöngu til Kanada á mjög veikum forsendum.

„Ég segi veikum forsendum vegna þess að hann hefur aðeins verið ákærður, en ekki dæmdur sekur,“
sagði Adams.

„Í landinu, sem haldið er fram að hann hafi framið verknaðinn, sem hann er fyrir dómi og hefur neitað, býr hann enn sem frjáls maður. Hann gengur þar frjáls eins og aðrir frjálsir borgarar.“

„Hann stundar sína atvinnu og það er eðlilegt að maður sé hissa að Kanada, sem er svo langt í burtu, beiti reglum gagnvart einstaklingi sem hefur aðeins verið ákærður,“ sagði Adams.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.